top of page

Skilmálar

BCA á Íslandi

BCA á Íslandi (MTN ehf. Kt.540416-1090) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun berst. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. MTN ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá MTN ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Ef pantað er í vefverslun fyrir kl.12 á daginn fer pöntunin í póst samdægurs, annars næsta virka dag. Ef pantað er eftir kl.12 á daginn fer pöntunin í póst næsta virka dag að síðustu. Ef upphæð pöntunar er yfir kr. 10.000,- er sendingarkostnaður frír fyrir kaupanda. Ef upphæð pöntunar er undir kr. 10.000,- fer upphæð sendingarkostnaðar eftir sendingarmáta. Þegar um stærri/þungar vörur er að ræða er sendingarkostnaður greiddur af viðtakanda, þetta á við um t.d. sleðapalla, kerrur, sliskjur ofl.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, ef viðkomandi vara er á útsölu eða á sértilboði við vöruskil þarf að framvísa kvittun til þess að sýna fram á upphaflegt verð vörunnar. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í fimm ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir MTN ehf. allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Það er öruggt að versla á www.bca.is. Greiðslur með greiðslukortum fara fram í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Skilmálar: List
bottom of page